|
|
23.05.2006 13:30:56 / erill
Ég er flutt!
Eins og ALLIR aðrir þessa dagana...
núna er ég :
http://erill.bloggar.is
kíkið... ég er meiraðsegja búin að blogga og allt, og hey! mér
þætti vænt um ef þið breyttuð líka tenglum á mig 
»
10.05.2006 20:30:19 / erill
Þegar ég byrjaði í MR kallaði ég Reykjavíkurtjörn óvart alltaf
Andabæjartjörn. Það gaf mér ekki mjög gáfumannslegan stimpil en
uppskar hlátrasköll þegar ég var að kvarta yfir skokkhringnum.
Ég er ennþá hrifin af Andrésblöðum sem að mínu mati eru
fullkomnun í einfaldleika sínum. Sérstaklega kann ég að meta
nafngiftirnar sem gefa alltaf e-ð til kynna um persónuna; Barði
Varðar (skógarvörður), Nappi Stelín (besti þjófur allra
tíma) eða allir ættingjar Mikka; frændur hans litlu Mikk &
Makk, Mikjáll Mús, Mikkella Mús.....
Toppnum fannst mér samt náð í dag þegar að bófatríeikið Dóni,
Kóni og Róni reyndu að ná heimsyfirráðum. Ef bara fólk héti svona
nöfnum svo að maður vissi hverjum maður ætti að passa sig
á.....
Jámmm ég les Andrésblöðin líka þegar ég er í prófum...
ef hér birtast einhver komment ætla ég að splæsa í Andabæjargátu
með verðlaunum 
»
08.05.2006 18:35:06 / erill
E-ð er greinilega að kveikna á heilanum í mér núna í prófunum
því að núna er ég hætt með einföldu draumana og komin yfir í heilu
kvikmyndahandritin...
Þess vegna var ég í nótt aðalpersónan í þvílíkri spennumynd;
Anna hafði platað mig til að hjálpa sér við e-ð sem hún sagði
mér ekki hvað var, kom svo í ljós að þetta "eitthvað" var að skila
stórri kókaínsendingu.....sem hún hafði stolið helmingnum af.
Þannig að þegar að gengið sem átti þetta sá það vorum við báðar
réttdræpar. Þeir náðu Önnu og börðu hana eins og
harðfisk (ég fékk að sjá myndir af henni frá
spítalanum, þær minntu svolítið á CSI) og fyrst að hún
komst undan þá var ákveðið að drepa mig.... Ég hafði hins vegar
flúið heim til bekkjarbróður míns og hann var klárlega hetjan í
þessu öllu saman, var alltaf e-ð að bjarga mér. Eftir svona 2 vikur
vorum við farin að vera aðeins rólegri og skelltum okkur út á
einhverjar fáránlega litlar svalir í snjókast, þar var ég skotin
beint á mitt ennið af svona snyper sem var í runnum rétt hjá...og
svo hann fyrir að hafa verið að vernda mig svona... Eina manneskjan
sem lifði þetta af? -Anna...
Er það til í dæminu að ég hafi kviðið fyrir
efnafræðiprófinu?
-Anna, heppin að vera ekki í alvöru eins og mig dreymir....
-ef hins vegar bekkjarbróðirinn er jafn mikil hetja og mig
dreymdi hann í nótt þá á hann einhvers konar riddarakross skilinn

»
05.05.2006 08:24:47 / erill
Hvað er það besta sem maður gerir í prófum?
-Sofa. Vegna þess að þar fær maður smá frí frá prófalestri og
þau eru ekkert að trufla mann, mann getur dreymt hvað sem
er.....
Wrong.... ég hef komist að því undanfarnar nætur að draumalandið
er ekki sú redding sem maður hélt að það væri.... ég hef farið að
sofa undanfarin kvöld, snemma til að vera vel úthvíld og hefur
dreymt allt frá brjáluðum Vampírum sem voru alla nóttina að reyna
að komast í færi við hálsinn á mér, þær bundu mig meiraðsegja
nokkrar í tannlæknastól (hefur e-ð með það að gera að ég var spurð
hvað ég stefndi á rétt áður en ég fór að sofa) og í morgun vaknaði
ég dauðþreytt því að ég var búin að vera að hlaupa um alla
nóttina.... bara í handklæði, og það var alveg við það að detta
(tengist því líklega að ég sá brot út Eurotrip, þegar þau fara á
nektarströnd, og mikið rétt, það var slatti af ógeðslegum allsberum
köllum að elta mig útum allt....) Mér finnst þetta pínu bömmer...
en hey! þá hætti ég bara að sofa, hvernig hljómar það að vaka bara
og taka prófin í einni striklotu?
»
30.04.2006 13:51:24 / erill
Fyrir nú utan það að þetta hlýtur að vera besta lag sem ég hef
heyrt þá held ég að það sé augljóst mál að þetta eru dansararnir
sem ég vil hafa í tónlistarmyndbandinu mínu!
http://video.google.com/videoplay?docid=-8610362188397291938&pl=true
Je, minn, eini!
»
28.04.2006 12:40:45 / erill
Í tilefni af þessu ææææðislega veðri;
Gaman:
- Að vera í kjól eða pilsi, nú er það loksins loksins
hægt, það er fáránlegt veður
- Að fara út í sólbað með útvarpið á og engar áhyggjur
- Að vera með rauðan varalit, snýr höfðum og svo er maður bara
e-ð svo hress og glaður í góða veðrinu
- Að vera með sólgleraugu.. maður fær kannski far en þau eru
kúl
- Að fara í sund til að brjóta upp lesturinn (og verða
brúnn)
- Að vera í strætó með krúttubollu útlendingum sem eru með
bakpoka og kort og ekki hugmynd um það hvert þeir eru að
fara...
Bögg:
- Að vera í þykkri, svartri úlpu það er HEITT að úti... ekki
henda samt, það kemur haglél fyrr eða síðar...
- Að læra fyrir próf inni og horfa á góða veðrið út um
gluggann...
- Að vera með svartan varalit... er ekki bara málið að fara að
gera lögbann við þessu Goth-kjaftæði?
- Venjuleg gleraugu.... maður fær far og nei, það er
misskilningur að það sé kúl að vera lúðalegur...
- Að hafa sent með systur sinni á Snæfellsnes öll sundföt sem
maður á...
- Að deila strætó með manneskju sem er ekki búin að fatta eðli
heimsendingaþjónustu heldur fer niður í bæ, kaupir pizzu og er
svo bara með kassann í fanginu á leiðinni (og gerir mann
brjááálaðan úr hungri með lyktinni, þar sem það rennur upp fyrir
manni að jú, mann langaði í pizzu, ekki
skyrdrykk...)
Leiðinlegast af öllu: þegar fólk er með leiðindi og nöldur í
fína fína veðrinu...
Skemmtilegast af öllu: að ég mundi í gær að gamall bekkjarbróðir
minn, í svona sjöunda eða áttunda bekk var samferða vini sínum í
skólann og þegar þeir komu á skólalóðina og leiðir skildu sagði
hann hátt og snjallt; "bless Sigurjón, og takk fyrir
samfarirnar!"
Viðbót: Skemmtilegast af öllu í gær: það að Jói og Eysi voru
fullir í skólanum... algjör snilld, stóðu sig samt vel í
spurningakeppninni...
Jámm ég er í fáránlega góðu skapi 
»
16.04.2006 22:43:02 / erill
ég ætlaði að byrja bloggið á mynd en þetta
fjárans blog.central.is dæmi er í fýlu...svo þið kíkið bara
sjálf:
http://www.dussault.ws/Easter%20Bunny.jpg
Ég er búin að finna mér nýtt "thing".
Undirmeðvitundinni hefur semsagt verið farið að leiðast fyrst
ég er hætt að detta í stigum (7,9,13) svo hún kippti þessu bara í
lag sjálf. Ég hélt að það að ég missti ipodinn minn um daginn í
gólfið hefði verið svona "one time thing" ég meina hann er alveg
nothæfur en ég sé ekkert á skjáinn...
Neibb neibb, missti símann minn í gólfið í gær,
ókei rétt upp hönd, hver hefur misst símann sinn einhvern tímann?
Er hann ekki svona í semi-lagi eins og ipodinn minn? Jámm ekki
minn, það heyrðist svona *plopp* hljóð og ég leit niður, þetta er
(var) svona opnu-sími, nú er þetta svona tveggja-parta-sími....
skjárinn brotnaði af og tengin inní sem gefa mynd á skjáinn og
hæfileikann til að heyra í þeim sem maður er að tala við fóru í
sundur... og það er ekkert eins og ég hafi misst hann úr 17 metra
hæð... hann datt svona 1og hálfan. Til að bæta gráu á svart þá á ég
39 kr. inni á kortinu mínu svo að núna er ég með gamla Nokia
3310 símann hennar Sigrúnar sem ég er búin að vera að gera grín að
síðastliðin 2 ár.... ég er að vona að þetta sé ekki byrjunin á
nýrri svona atburðahrynu hjá mér en ég ætla ekkert að fara að
hlaupa á milli húsa með fartölvuna svona just in case.......
-Erla, sem er að fara yfirum af
páskasúkkulaðiáti...
»
13.04.2006 01:28:32 / erill
... Ingu í dag, með mömmu, en mamma skellti sér ýmislegt svo að
þetta vorum eiginlega bara við Inga. Litla krúttið er samt með
hlaupabólu svo að það er frekar svona stuttur í henni
þráðurinn....
ég setti upp einhver fáránleg þrívíddargleraugu því að hún var í
fýlu og hafði fundist þau e-ð fyndin fyrr um daginn;
Inga: "hættu, þú ert ljót svona!"
Ég: " nújæja... (tók þau niður)... í lagi núna?"
Inga: "nei þú ert ennþá ljót!"
maður fær það semsagt óþvegið en well.... ég græt mig þá bara í
svefn ....það er huggun harmi í að það er í í glæææænýju rúmi
.... mmmmmmm...
»
10.04.2006 16:59:40 / erill
....prófaði ég í fyrsta skipti yoga, hjá Guðjóni Bergmann... æi
þið vitið tantragaurnum þarna...
Mæli með þessu ef þið viljið upplifa það hvernig það er að
deyja. Þetta er ekkert eðlilega erfitt, í eitt skipti var aaaaalveg
að líða yfir mig, svo að ég lagði mig bara á dýnuna... sem var bara
kósí, pínu kjánalegt samt því að það var fullt af eldgömlum
jógasnillingum þarna og ein kasólétt kona.... en hey! æfingin
skapar meistarann (?) og svo var slökun í lokin svo að þegar
maður kom út þá var eins og maður væri ekki búinn að gera neitt....
ég kann að meta þetta, nei án gríns, ég mæli með þessu, ég ætla að
fara að kaupa mér kort, það felst einhver friðþæging í því að
vera með svoleiðis í veskinu 
annars er helgin bara búin að vera frábær, mömmu langaði svo að
sjá Idol á föstudaginn að pabbi dekraði við hana
og skellti sér bara á tveggja mánaða áskrift að Digital
Ísland... ég fattaði það ekki fyrr en eftirá að hann fékk aðgang að
Mastersmótinu í golfi með ... útsmoginn kallinn...
that's it... ég held ég hafi ekkert meira að segja.... nema jú,
skellið ykkur í bíó á Ice Age 2... hún er snilld, mér fannst hún
meiraðsegja betri en fyrri myndin og það gerist...uuu...
aldrei...
»
06.04.2006 15:29:05 / erill
Ég veit ekki alveg hver fær titilinn kjáni síðastliðinna daga
hjá mér;
- 10. bekkjar stelpurnar sem voru með mér í strætóskýli áðan og
voru að vorkenna sér geðveikt mikið útaf einhverju sagnorðaverkefni
fyrir morgundaginn... ég vissi ekki alveg hvort ég ætti að sparka í
þær eða vorkenna þeim vegna heimanámsskellsins sem þær fá þegar þær
byrja í menntaskóla ....
- Rúmlega sextuga konan í Hagkaup sem svaraði
spurningu um tímann frá einni samstarfskonu sinni sönglandi ;
"klukkan er, málmur og gler, í rassinum á þér" gott að vita að
maður á eftir að detta aftur inn á fimm ára húmorinn einhvern
tímann...
- Jeppakallinn sem var stopp á ljósum ská á móti mér og fattaði
ekki að það var komið grænt fyrr en einhver fyrir aftan
hann flautaði, tók þá hressilega af stað..... afturábak! Ég
held ég hafi aldrei séð eins fullkomlega framkvæmdan tóman svip
eins og á honum á meðan hann var að reyna að átta sig á því hvað í
f j á r a n u m hann gerði! ..... Mér finnast árekstrar
almennt ekkert fyndnir, en það slasaðist enginn og ég ætlaði að
kafna úr hlátri...
- eða Jói, bara afþvíbara....
nú vil ég fá kosningu...... hver á heiðurinn skilið?
...ég hef samt óljósan grun um það hver vinnur...
»
02.04.2006 12:28:25 / erill
Fór í gær í bíó með Önnu, mér var semsagt boðið en hún "gleymdi"
að segja mér að þetta væri nokkurs konar hryllingsmynd þangað til
við vorum komnar.... Erlan þokkalega föst á svæðinu.
Fórum á When a Stranger Calls og jámm... Maður var
hræddur allan tímann og það hefði nú verið fínt að hafa einhvern
með stáltaugar við hliðina á sér ... kannski ekki Önnu sem
tilkynnti það reglulega að henni væri flökurt af stressi og
hræðslu... ég hélt líka að ég myndi þurfa að plokka hana úr loftinu
eftir bregðuatriðin.
Svona myndir eru nú ekki alveg minn tebolli en þessi var samt
hrikalega góð... eða mér fannst það, ath! þetta þýðir ekki
að ég sé að fara að horfa á The Excorsism of Emily
Rose eða e-ð með ykkur!
.... Mín sofnaði nú samt uppi, með kveikt á lampa og Andrésblaði
í fanginu... Það hefði kannski bara verið gott múv að fara á
kallakórstónleikana hans pabba uppií sveit í gær?
Toppurinn: þegar að stelpa við hliðina á mér tilkynnti í símann
að hún væri að fara á "When a Strangler Calls"... ein ekki alveg að
skilja aðalplott myndarinnar!
»
30.03.2006 17:02:36 / erill
Vá hvað tæknin getur klúðrað mörgu fyrir manni!
Dæmi: GSM-símar. Það er svo suðvelt að klúðra einhverju með
sms-um, ef maður væri að hringja í skakkt
númer þá myndi maður fatta það á röddinni áður en maður færi að
splæsa hinum ýmsustu persónuupplýsingum á viðkomandi ekki satt?
Ég hef fengið minn skerf af sms-um sem áttu bara alls ekkert að
koma til mín. Einhverja nóttina vaknaði ég t.d. við það að ég fékk
tvö sms sem innihéldu textana; ,,Erla, eftir að hitta þig
trúi ég á ást við fyrstu sýn," og ,,augun eru sannarlega
spegill ástarinnar, gerðu það, viltu hitta mig? kv. Hilmir"
Ég þekkti engan Hilmi svo að ég svaraði að sjálfsögðu strax
með einhverjum vel orðuðum skilaboðum sem innihéldu spurningar um
geðheilsu viðkomandi (kannski hefur það að þetta var mið nótt haft
e-ð með pirringinn að gera) Eftir smá samskipti kom í ljós að hann
hafði hitt einhverja á djamminu sem hét Erla og var að reyna að ná
sambandi.... pínu bömmer, en vá tilviljunin!
Í gær fékk ég nefnilega svakaleg gleðiskilaboð, einhver Vala og
maðurinn hennar voru að eignast son, allar upplýsingar um lengd og
erfiðleika fæðingar og stærð stráksa fylgdu með. Þetta hefðu í
sjálfu sér verið enn skemmtilegri skilaboð ef ég hefði þekkt nokkra
einustu Völu sem var ólétt þangað til í gær! Í dag var þetta svo
toppað.... jújú lengi má gott bæta. Ég fékk senda mynd af barninu!
Ég varð að láta þau vita og splæsti í sms á móti, ég á ekki von á
fleirum.... pjúff... En óþægilegt fyrir þau að vera kannski að
senda ömmunni mynd af prinsinum en svo er það
bara einhver stelpa í Kópavoginum sem fær hana... creepy....
lætur mig langa til að endurskoða og prófarkalesa allt sem fer frá
mér... just in case!
gætuð þið kannski skellt fullu nafni ogkennitölunni ykkar með
skilaboðum til mín í framtíðinni?
»
28.03.2006 20:33:35 / erill
jámm... þá er kalda vatnið farið hjá okkur aftur. Það kemur
heitt úr báðum krönunum, hitaveituvatn úr heita og soðið vatn úr
kalda.... og ég er ekkert að plata...
Þetta gerðist í fyrra líka. Þá var sprungin heit leiðsla í
götunni en þetta var bara í okkar húsi.... við hringdum í
orkuveituna og það endaði þannig að það þurfti að rífa bílastæðið
upp hjá gömlu konunni við hliðiná ... okkur leið svakalega vel
með það...
Þetta skiptir svosum engu máli, maður bara brennir sig þegar
maður tannburstar og það er ekki hægt að fara í sturtu... eða
drekka vatn. Ókei djók þetta skiptir hellings máli!
Systir mín á samt heima í næstu götu og ég var að koma úr sturtu
hjá henni sem er ástæðan fyrir því að ég fór að blogga. Addý var
ekki heima, bara Gummi og Inga. Inga var mjög glöð að sjá mig (eins
og oftast ) og fannst voðalega skemmtileg tilhugsun að ég kæmi
til þeirra til að fara í bað. Þegar ég hinsvegar var að fara að
loka inn á bað rak hún upp stór augu og sagði við mig: "en Erla þú
gleymdir að hlaupa berró-hring!" þetta uppskar hláturroku úr
sófanum þar sem Gummi var að horfa á enska boltann og; "þá fyrst
færu nú nágrannarnir að tala!"
Það er nefnilega svona eyja í íbúðinni þeirra sem er hægt að
hlaupa í kringum og Inga notar það óspart áður en hún fer í bað, og
hvað er eðlilegra en það að Erla, sem tekur þátt í öllum öðrum
leikjum hennar skelli sér í berró-hring?
Aaaahhhh...þessi litlu kríli... ég á eftir að lifa á þessu
lengi 
viðbót, 30.mars:
vatnið að komast í lag!
Ástæða: bílastæðið hjá konunni við hliðiná sem býr ein með hundinum
sínum hefur verið rifð upp með rótum....aftur!
Við förum örugglega til himna!
»
27.03.2006 13:33:01 / erill
Leti mín þessa dagana er í algjöru hámarki... ég held að ástæðan
liggi í einhvers konar verkkvíða þar sem verkefnin sem hrúgast upp
fyrir augum mér eru ekki beint spennandi....
dæmi:
Skella sér niður í Sporthús og reyna að gera e-ð af viti, sem er
í sjálfu sér ekkert leiðinlegt... en það truflar reyndar
letiþemað
Svo ætlaði ég að reyna að minnka draslið í herberginu mínu - ef
það gengur ekki þá teikna ég kort af því svo að ég komist í skólann
á morgnana klakklaust.
Byrja að læra eins og vitleysingur til að leysa þessi blessuðu
vorpróf á frekar mannsæmandi hátt, þetta felur í sér að læra heima
fyrir ALLA tíma (ekki suma, ég virðist hafa tapað þessum hæfileika
einhvers staðar á leiðinni, mig grunar að hann, altso
hæfileikinn, liggi týndur í áætlunarflugi
Keflavík-Minneapolis)
Fyrst er ég samt að fara með ömmu til læknis....
Ég hlýt barasta að vera aðalpersónan í einhvers konar
raunveruleikaþætti (svona eins og The Truman Show) líf
mitt er svo óendanlega spennandi!
Eftiráviðbót: ég er að finna fleiri og fleiri marbletti eftir
laugardagskvöldið, þeir sem vita hvað í fjandanum ég var að gera
vinsamlegast segi mér það 
»
21.03.2006 14:08:31 / erill
Þegar ég var lítil las ég svakalega mikið í stjörnumerki. Ekki
það að ég vissi hvað stjörnuspá væri, ég vissi bara að allir væru
e-ð ákveðið og ég hélt að það segði e-ð um manneskjuna. Kannski er
það ástæða þess að ég kunni ekki vel við krabba 
Það tók mig mörg ár að fatta það að ástæðan fyrir því að ég
eeeelskaði sund lægi ekki í því að ég væri fiskur.
Enda hló mamma ekki lítið að því þegar að heitfenga barnið
sparkaði sænginni af sér í milljónasta skipti og sagði
sem útskýringu: "mér er allt of heitt, ég vil það ekki. Mamma ég er
fiskur, ég er með kalt blóð!"
Segið svo að börn misskilji hlutina 
~>Erla fiskur
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
|